Hér kemur e-ð fyrir ykkur fyrst ykkur fannst vanta e-n smá perraskap á bloggið.....Má bjóða ykkur danskt sæði?
Danski sæðisbankinn Cryos, sem hefur höfuðstöðvar í Árósum, sækist nú eftir leyfi til að kaupa sæði af karlmönnum í Noregi með það fyrir augum að selja það á alþjóðamarkaði en fyrirtækið hyggst kynna afurðina sem erfðaefni víkinganna. Þetta kemur fram á fréttavefnum Erhverv på Nettet.
Töluverð eftirspurn mun vera eftir sæði frá Norðurlöndum og þá sérstaklega á meðal Bandaríkjamanna af norrænum uppruna.
Danski sæðisbankinn útvegar þegar aðilum í rúmlega 40 löndum sæði frá Danmörku og auglýsir það sem heilbrigt og sterkt víkingaerfðaefni. Lítið er hins vegar um að norskir karlmenn gefi eða selji sæði þar sem norsk lög kveða á um að öll börn eigi rétt á að vita hverjir líffræðilegir feður þeirra eru.
|