Það er greinilegt að vera mín í vísindateyminu EEG er farið að "há" mér þar sem ég hef greinilega tekið þá stefnu utan rannsóknarstofunnar að finna upp á nýjum og óvenjulegum hlutum (sbr að vera með 200% heimtur og að efnasmíða gull). Í dag hef ég s.s. tekið upp á því að verða bara þunn ÁÐUR en ég fer í partyið!! já, þegar ég kom heim núna áðan þá fann ég það að ég var svona "þunn" eftir sælgætiskappátið áðan, enda ekki óvenjulegt eftir stanslaust nammiát í 10 mínútur!!!!
Svo þegar ég var að labba inn frá bílnum þá var ég eitthvað að spá í hvort ég hefði lagt bílnum eitthvað óheppilega uppá að komast upp í tröllið á eftir þegar Axel skutlar mér og þá fékk ég svona *fokk!!* yfir því að vera ekki búin að hugsa út í hvort ég ætti eitthvað annað en venjulegu djammfötin til að fara í, sjitt sjitt!!! En svo fattaði ég mér til mikillar ánægju að ég væri hvort eð er löngu búin að finna það út þarsem við erum að fara í búningum! Ah, hvað það er þægilegt að vera laus við þann hausverk ;)
10 febrúar 2007
Birt af Nafnlaus kl. 17:49
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|