20 mars 2007

Halló yndislegu bekkjarsystur,nú er komin svo skemmtileg hugmynd að við ætlum að fara gera eitthvaðsaman, ALLAR! Þá eitthvað annað en saumó, þó verður auðvita ekkert skafiðaf slúðrinu, nokkrar hugmyndir eru komnar:
a.) það að fara út að borða á vegamótum og sötra vínglös

b.) það að borða hjá Sigrúnu Sif, þ.e.a.s allir koma með smá rétt og deila og ekki má gleyma að taka með sér uppáhalds borðvínið með sér og deila og kannski kíkja á kaffihús í einn drykk (mæli með barnum hennar Eyglóar næsta bar)

c.) það að fara eitthvað fínna út að borða s.s. tapasbar (þar sem hægt erað kaupa fá litla rétti fyrir þá blönku) og að sjálfsögðu rauðvín hússins með, sem er milt og gott hjá þeim.

d.) það að fara í einhverja skemmtilega vetfangsferð s.s leigja tennisvöll eða fara í fjallgöngu, og svo söddra hvítvín til að slaka á eftir erfiðin á kaffihúsi

e) halda rauðvíns/hvítvínsklúbb hjá einhverjum með ljúffenga og framandi osta. Með fallegri músik í bakgrunninum og varalit á vínglösunum.

f.) það að einhver komi með skemmtilega hugmynd um að gera eitthvað sem inniheldur rauð/hvítvín (hihi)