18 apríl 2007


Jæja! Sigrún var orðin leið á páskakanínunni og bað mig um að redda þessu, og eins og hefur komið fram hér áður þá blogga ég bara eftir hennar pöntunum (og rúmlega það). Nema þú veist ekki hvað ég er búin að vesenast mikið fyrir eitt blogg fyrir þig Sigrún mín!!! Málið er eitthvað að Blogger er komin í kvennabúr Google og það þarf því að vera með Google account til að geta bloggað og þetta var ekki að virka hjá mér og ég var orðin soldið brjáluð þar til GStef kom og reddaði mér og við ákvaðum til að geta notað Google fídusinn til fulls að henda ykkur öllum út og bjóða upp á nýtt, þannig að allir að vera duglegir að segja já og amen við Blogger!

Annars eru það bara próf næst á dagskrá þannig að ég býst við því að þessi síða fari að taka vor-hreyfingar prógrammið sitt á næstunni (og þessvegna verðið þið að vera góð við blogger svo það verði líka ný blogg en ekki bara endalaus komment!). Annars var pælingin held ég að fólk mundi hittast og fara yfir pælingar á þessari prófgrein og ég held að 3.maí sé dagurinn, 2 dögum fyrir próf og þá hefur fólk séns að vera búin að kíkja á greinina (sem er eila skylda, er það ekki?) en samt ekki kominn daginn-fyrir-próf skrekkur í fólk. Getum spáð í tímasetningu betur á mánudaginn.
Þá er blogginu fyrir Sigrúnu lokið... Svo fer ég bráðum að setja bloggið í sumarfötin líka!