Mig langar að kynna ykkur fyrir vinkonum mínum! Þær eiga það allar sameiginlegt að vera alkalóíðistar...
Cantharantus roseus aka vinca rosea - mikil djamm pía frá Madagaskar, hún var alveg sykur-sjúk en þegar strákarnir fóru að skoða hana betur þá kom í ljós að hún var einstæð móðir með dæturnar VinKristín og VinBlastín sem voru algjörir skæruliðar og ullu öllum gæjunum sem komu heim með djammpíunni ógleði og ertingu...
Næsta skvísa er Nicotiana tabacum sem er hálfgerð kartafla ef ég á að segja eins og er... Hún er alveg svakalega uppáþrengjandi þegar maður kynnist henni, maður losnar ekki svo auðveldlega við hana. Hún er svolítið fljótandi greyið og kemur af Ornitín og Aspartik ættum frá Ameríku og Kyrrahafinu og hefur komið víða við, í háþrýstings-ríki, siglt um kirtil-seytunar hafið, skotið örvum í öndunarskógi og farið í örvandi ferðir í svörtustu skógum MTK-svæðisins! Hún er samt veik kona og hefur verið greind með parkisonss og hugsanlega með alzheimer og verki þar ofanálagt. Það sem hún getur verið pain in the ass! þá er gott að halda sig frá henni því eftir langvarandi samverustundir fær maður hausverk, svima og ógleði!
Að lokum má kynna Erythroxylum coca sem vill helst ekki ganga í neinu öðru en kókablöðum, ef þau eru ekki í nægilegu magni þá fær hún eitthvað svipað og smíðar það bara ! Hún vill helst staðdeyfa allt sem hún kemst nálægt en hún hefur áreitt svo mörg MTK að þau hafa fengið nálgunarbann og því hefur hún dregið sig útúr staðdeyfingarbransanum og er farin að meika big bucks í pasta, salt og basa bransanum og getur þar nýtt kunnáttu sína í endurupptöku-blokkum í Katekólamínhverfunum og hindrun í leiðindar sms-taugaboðum. Þegar hún var blönk í gamla daga þá skrapaði hún saman seðlum m.þ.a. taka þátt í rannsóknum sem voru fyrstu skref í klónun nema þá var tæknin ekki betri en svo að það komu ekki eins eintök út en þar sem klónin voru mjög góð í staðdeyfingarbransanum og það vantaði starfskrafta var þeim ekki fargað!
|