Þetta er svolítið skemmtilegt að skoða!
Hérna er mbl.is að segja frá því að Lyfjastofnun telji að íslenski læknirinn í Svíþjóð, sem er að bjóða uppá að leysa út lyfseðla fyrir fólk þar og senda til Íslands, sé að gera ólöglega hluti, sem ég er alveg sammála. En það sem er svo skemmtilegt við þetta er að skoða til hægri bloggin þar sem bloggað er um þessa frétt, þar eru öll blogg um að stofnunin sé úreld og hún sé ekkert að gera nema gæta hasmuna lyfsala og "hvetja til" einokunar á lyfjasölu hérlendis með því að banna allt sem getur orðið til þess að fólk geti fengið lyfin sín ódýrari. Þið megið til með að kíkja á þetta, er soldið skondið, sérstaklega einn gaur sem kommentar á nokkrum bloggum nánast það sama: "Niður með Lyfjastofnun!" Ætli hann sé tilbúinn með spjaldið í kröfugöngu gegn Lyfjastofnun ??
12 júlí 2007
Birt af Guðrún Lind kl. 23:10
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|