08 ágúst 2007

Aðeins svona til að hressa ykkur við á þessum síðustu og verstu tímum.....þá rakst eg á þessa grein á visir.is

Tegund sérstæðra ferskvatns höfrunga er útdauð, eða svo telja vísindamenn sem lögðu í leiðangur til að rannsaka höfrungana. Þeir fundu ekki eina skepnu. Höfrungarnir lifðu eingöngu í Kína þar sem þeir voru þekktir sem Baijis. Höfrunarnir höfðu löngum verið fágætir en verulega fór að rýrna í stofninum á áttunda áratug síðustu aldar. Dýrin voru þá sett á lista yfir tegundir í útrýmingarhættu.Vísindamannateymi sem ritar um málið í tímaritið Biology Letters kennir heiftarlegum veiðum mannsins um örlög höfrunganna. Ef satt reynist er þetta fyrsta útrýming hryggdýrs í fimmtíu ár og í fyrsta skipti sem hátterni mannsins gengur að sjávarspendýri aldauðu.

Finnst ykkur ekki ótrúlega skrýtið samhengið í þessari grein? Dýrið er ferskvatnsdýr en samt veldur útrýming þess útrýmingu sjárvarspendýrs.......skil ekki alveg hvernig sjávardýr blandast inn í þessa umræðu?!?!?!