02 september 2007

Sælar stúlkur og til hamingju með afmælið Eygló !

Ég var að spá varðandi sumarverkefnin sem þið gerðuð í fyrra, tók einhver af ykkur fyrir ákveðinn lyfjaflokk og skrifaði um hann ??? Ég er nefnilega að gera svoleiðis verkefni og veit eiginlega ekki alveg hvernig ég á að byrja að skrifa. Ef þið eruð æstar í að hjálpa mér þá óskast verkefni send á netfangið elinborg@hi.is, svona til samanburðar þið skiljið.

Annars þá er ég nú bara hress og kát eins og venjulega. Skilaði mér heim frá Taiwan í heilu lagi, aðeins skotin en annars bara eins og áður. Er svo núna á fullu í að mála íbúðina sem múttan mín var að kaupa og er að fara að flytja í Kópavog næsta laugardag !

Sé ykkur í skólanum á morgun...