25 ágúst 2008

Jæja nú fer ég frá ykkur eftir 2 daga ... sniff sniff....
verð samt að viðurkenna að ég ræð mér ekki fyrir spenningi að hitta kæró! Verður gott að tala saman öðruvísi en á skype!

Eygló ég býst við að heyra allt um NY hér á þessu bloggi þegar þú kemur aftur með viðeigandi myndum t.d. úr sex and the city túrnum og hunki ferðarinnar.

Erla hér getur þú sett inn myndir af hugsanlegum borðskreytingum í brúðkaupinu (ekki ráðlegt að setja kjólamyndir ef maðurinn þinn verðandi kíkir hér inn!) og fengið ráðleggingar

GLind getur sagt frá hvernig það er að vinna í sjálfstætt reknu apóteki og hvernig samkeppninni við keðjurnar er háttað

Katla og Kristín fræða okkur um lífið í návist Hagans og hvernig liðinu þar gengur að fóta sig í deildinni án okkar

Eydís fræðir okkur svo um undirbúninginn fyrir Perú ævintýrið :)

Eru fleiri með aðgang að þessu bloggi?!?!