09 október 2003

ææ, það er ákaflega langt síðan ísskápurinn minn var svona sorglegur. lítil mæjónes, voga ídýfa og botnfylli af brauðstangasósu frá dominos. hvað getur mann eldað sér úr þessu? Ella, þú varst í húsó, var þér ekkert kennd skyndihjálp í slíkum aðstæðum??
annars fórum við ásta og heiður að gefa blóð í dag. frekar misheppnuð ferð hjá okkur skvísum. ég mátti ekki einu sinni fara í greiningu því ég er með kvef og heiður mátti það ekki heldur. en ásta gaf blóð og þá leið yfir þessa elsku. svo við eyddum dágóðum tíma í að bíða eftir að blóðþrýstingurinn hennar hækkaði aftur, sem var nú bara gott því í blóðbankanum fá allir að borða;) þar var brauð,kæfa,ostur og allskonar álegg, svo við höfðum það bara fínt í dinner at the bloodbank. segið svo að það sé ekki hægt að elda eitthvað úr mæjónesi, ídýfu og brauðstangasósu-- mann borðar bara í blóðbankanum. Ekki flókið!!!

svo þegar ég var að labba inn götuna á leiðinni heim, mætti ég svona líka myndarlegum lögreglumanni. Ella við skulum bæta við missionið- hvar og hvenær er árshátið lögreglumanna haldin?;)
jæja ætli það sé ekki best að koma sér í háttinn svo maður verði nú úthvíldur fyrir þessa eðlisfræðitilraun, sem mig grunar að verði nú eitthvað skrautleg.