08 október 2003

jæja nú er dauðans þriðjudagurinn búin og sól komin í hjarta okkar e&g gellanna á ný. Að vísu vorum við nú að koma úr dæmatíma í stærðfræði þar sem ég,erla og ella sátum eins og simpansar í rússneskukennslu, þannig var allavega skilningurinn þegar leið á tímann. Hins vegar held ég að fremstu rithöfundar í rauðu seríunni hefðu fengið fiðring og skjálfta yfir öllu neistafluginu í þessum tíma. Það er svo brilliant plot í lélega ástarsögu í gangi þarna!! Sjáið þetta aðeins fyrir ykkur;;;
í staðinn fyrir:
Hann var hávaxinn, herðabreiður og dökkur yfirlitum. Karlmennskan geislaði af honum þegar hann kom inní hellinn á eyðieyjunni með skógarbjörn á herðunum. Hann hafði veitt í matinn................
þá höfum við hér:
Hann var kubbslegur, með strípur og í joggingbuxum í þetta sinn. Gallabuxurnar fengu hvíld í dag vegna veikinda. Hún lét það ekki á sig fá því hún mundi það ljóslifandi hvernig afturkinnarnar litu út þegar þau hittust síðast.
Hún: "Veistu ég bara þoli ekki þegar það er notuð svona dt/dx, dy/dx tákn allsstaðar. Mér finnst það flækja málin e-ð svo mikið."
Hann leit djúpt í augu hennar og hún fann strax hitastraumanna frá honum.
"Æ, já ég veit það, mér fannst það líka fyrst en svo venst maður þessu." Á þessu augnabliki vissu þau bæði að þau yrðu tengd órjúfanlegum böndum það sem eftir er! Hún vissi að hér var maður sem skildi meira en y´. Hann myndi sýna karlmennsku sína með því að leiða hana í gegnum frumskóg óskiljanlegra tákna og koma henni aftur til siðmenningar. Þau vissu að þetta stefndi í óendanlegt.........


Eins og sjá má er allt að gerast hjá lyfjó-genginu. Bíðið spennt eftir framhaldi í næstu viku. Takið miðvikudaginn frá---To be continued........;)