31 október 2003

Jæja þá er edrú-helgin gengin í garð og gengur bara ljómandi vel (kannski af því að klukkan er bara eitt á hádegi;) Ætlunin er að gera ekki neitt annað en að læra um helgina!!! (fyrir utan náttla idol-kvöld hjá Kóngu og spilakvöld hjá Ástu og Heiði á laugardaginn;) ok, það má kannski skella í sig 1-2 bjórum svona til að vera með en ekkert niðrí bæ vesen! Annars fékk ég nú ágætis fiðring áðan þegar ég fór með Kóngu og Heiði á Kentucky....:/ þær eru nebbla að fara í partý til Jóa sko..... ég meina ég get náttla alveg kíkt þangað bara svona til að athuga hvernig fólk er að skemmta sér og svona....:/
jájájá kemur bara í ljós.........................
Ég er líka svo voða ánægð eitthvað með þessa viku því ég var svo dugleg að fara í ræktina og að skólast:)
well,well ég er að hugsa um að skella mér í þessar efnafræðiskýrslur áður en ég fer að pumpa í ræktinni. Ég fer að verða svo mikill massi!!!!! Passið ykkur bara á mér! Better stay in my good books...hehe
Haben Sie eines gutes wochenende! (eða e-ð solleiðis)