halló halló hafnafjörður...
djöfull er mér nú kallt... ég sit heima hjá mér með alla glugga lokaða og hækkað á ofnunum... og svo er ég þar að auki komin í hlýju peysuna sem ég er alltaf í þegar ég er að læra því mér er oft svo kalt þá, því mar situr jú bara á rassgatinu og hreyfir það ekki... en það er ekki allt, þess utan er ég komin í göngusökkana mína, sem eru þykkir og þægilegir, svo er ég komin í cintamani ullarnærfötin mín, síðar nærur og rúllukragasíðermabolur og svo í venjulegum bol og buxum inn á milli hlýju fatanna... svo með reglulegu millibili fer ég og hita mér te... þetta er nú meira ástandi á manni....
ég er ekkert smá stolt af mér! vaknaði kl 6:30 í morgun, á fösudegi, þrátt fyrir það að ég þarf ekkert að gera í dag nema skila af mér verkefnum í skólan fyrir kl 13, ég fór út með voffan, og hjólaði mér svo í sund og synti þar 50 ferðir, geri aðrir betur! ...ég reyndar efast ekki um að allir eru að gera betur en það, en ég er nú samt stollt með þetta!!!
well, back to studying... :oS
31 október 2003
Birt af Nafnlaus kl. 11:13
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|