19 október 2003

Mig langaði bara að deila þessu með ykkur..... ég fór í Hagkaup í Kringlunni á föstudaginn og þeir eru farnir að selja jóladót. þarna lá þetta bara eins og hver annar varningur á uppsprengdu verði og guð má vita hversu lengi þetta er búið að vera þarna. Hagkaup- þar sem Íslendingum finnst skemmtilegast að versla!! Íslendingar hljóta þá að vera geðbilaðir!!!! hvaða fífl þarf tvo mánuði til að versla hluti sem hann á nú þegar alltof mikið af heima hjá sér!!!