23 október 2003

jæja, þá er þessi líka fína tilbreyting í skólalífið búin!
vorum að koma úr námskynningu í PharmaNor, ég "þekkti" nú kanski companíið betur en aðrir en þetta var nú bara helvíti gaman að þessu, og fín tilbreyting eins og ég segi...
mér finnst þessi áfangi bara ágætur, rosa fínt að hafa eikkað svona til að breyta til, svo mar sé ekki alltaf að gera það sama...
svo fattaði ég eitt áðan líka, vinnufélagi/besti vinur kallsins míns sagði mér að bróðir stráks sem við þekkjum og jeppumst mikið með er í lyfjó, og ég kveikti ekki á perunni fyrr en seint og um síðar meir þegar við borðuðum köku í pharmanor, þá er þetta bara gaur sem er meira að segja með mér í eðl-tilraunum, þessvegna fannst mér ég kannast svona helvíti mikið við hann, hann er svo líkur brósanum...
annars er lítið að ské, er með hálsbólgu og er að kafna úr klæðnaði því ég vil ekki verða veik, frétti af einum sem byrjaði með hálsbóglu, 6 tímum seinna var komin 40°hiti og hann fór ekki í vinnu í viku... nenni ekki sollis vitleysu.. er að spá í að lesa efnafræði þar til ég sofna og lúlla þetta bara úr mér....