05 október 2003

váts, hvað ég er í úber-ofurstuði eikkað núna síðan í gær!
komst ekki heim í gær eftir skóla, fór að vinna í L&H í JL-húsinu kl 12 og það tók því ekki að fara heim á milli. við vorum bara 2 að vinna frá 12-7, ég og Þórey sem að er nýjútskrifaður lyfjafræðingur. það var svona frekar rólegt að gera hjá okkur og ég bara dró upp efnafræðina og las soldið í henni á milli þess sem við spjölluðum og unnum, þetta var samt nettur vinnudagur, Þórey sagði mér að ef ég lenti í klemmu þá ætti hún til glósur, ætli ég hringi ekki í hana grátandi í lok nóvember :) hún var líka að segja mér frá þessum viðaukum með bókunum þar sem eru svona meiri svör og sýnidæmi og stuff... það er kanski ekki svo vitlaust... kanski er það til á bókasafninu... mar verður að tjekka á þessu...
svo kl 7 þá hjólaði mín heim, Axel var uppí sveit og þorði ekki að koma heim fyrr en seint því ég bað hann í náms-fýlukasti á föstudagskvöld að vera sem lengst í sveitinni svo ég gæti komið einhverju í verk í lærdómnum... svo reiknaði ég eðl og stæ á nó tæm og var bara í svo gúddí fílings að ég fór bara að taka til eins og mother fucker, vaknaði kl 9:30 áðan í stað 10:30 og er að spá í að fara bara á hlöðuna þegar hún opnar og vera þangað til ég fer að vinna kl 1 því ég er í banastuði skal ég segja ykkur, mar tímir eila ekki að hætta þegar mar er kominn í þennan ham!