Eydís fór í spinning áðan! sem er kannski ekki frásögu færandi nema hvað að spinning-guðirnir voru bara ekki á mínu bandi í dag!!
byrjaði á því að taka frá hjól og fór svo niður að klæða mig. en þegar ég ætlaði að byrja að hjóla þá get ég það ekki því keðjan á hjólinu er slitin:( ég ætla að fara á hjólið við hliðina en þá segir maðurinn fyrir aftan mig að keðjan sé slitin á því hjóli!!! hverjar eru líkurnar? þá segir kennarinn við mig að ég geti tekið hjólið sem er aftast því maðurinn, sem er alltaf á því, kemur líklega ekki. jibbí, keðjan í góðu lagi og eydís byrjar að hjóla.
eftir 2-3 lög er mér litið á manninn fyrir framan mig......
soldið vel þykkur maður........en það er nú í góðu lagi
hann var í soldið stuttum bol..........en það var nú kannski í góðu lagi líka
en stuttbuxurnar hans náðu bara ekki nógu langt upp.......EKKI Í LAGI!!!!!
ojojoj.......fékk að sjá mun meira en ég vildi...................
hurru svo er mín í þessum líka svaka ham í tímanum, frábær lög og ég hamaðist alveg á milljón og svitnaði eins og svín (reyndar svitna svín ekki því þau hafa ekki svitakirtla og þess vegna skil ég ekki alveg þetta orðatiltæki, en þetta er svo sem betra en að segjast hafa velt sér um í drullu til að kæla líkamann niður eins og svín).
anyways, þá er ég þarna í miðjum spretti og allt í einu kaapúmmm, hvað er að gerast?????? jú jú keðjan slitnaði!!!!!!!!! að lenda á 2 hjólum með slitnum keðjum- greinilegur möguleiki! en að slíta svo keðjuna á þriðja hjólinu??!?!?!?!?!?!? bíddu hva hva ha??????????
það var ekkert hjól laust svo ég þurfti að fara útúr tímanum þegar það voru þrjú lög eftir.........svekkt kona!
svo ég fór bara heim að leika mér á netinu og hlusta á jólalög. merkilegt hvað manni líður alltaf vel að hlusta á jólalög! híhíhí núna er færeyska lagið með Ladda: jeg fer altaf yfirum júlin ;);) ég elska það því ég fæ það svooo mikið á heilann alltaf;)
18 nóvember 2003
Birt af Eydís kl. 21:10
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|