18 nóvember 2003

ah...
þetta djammerí var bara fínasta fínt... gaman að djammería með fólkinu og hitta gamla kunningja ;)
en núna verður mar að fara að taka sig á (segi ég og er að blogga eikkað á netinu!!!)
mar er réttsvo að fatta hvað það er í raun lítið ettir... mar veit af því allan veturinn hvað tíminn er asskoti fljótur að líða en samt er mar alltaf jafn hissa og skelkaður þegar mar fattar að það eru bara 3 vikur að fyrsta prófi... mar er nú soddans kjánalingur...
held að ég sé komin með meistara próf í að finna mér eikkað algjörlega tilgangslaust að gera þegar ég hef fínan tíma til að læra... eins og td netið... ekki erfitt að þvælast eikkað og skoða eikkað sem mar rekst á einhversstaðar og hefur kannski ekki einu sinni hugmynd um hvað er... híhí... já. það er ástand á manni...
en ég ætla að sparka í rassinn á mér og hætta núna og læra...
(... kíki samt á 2-3 síður áður en ég hætti alveg...)

allir dúglegir að láta vitleysuna flakka !!!