ég sá soldið skrítið í gær... hundurinn minn lá á gólfinu og nagaði táneglurnar sínar... svo segir fólk að þessi dýr séu ekki mannleg... mann langar nú samt oft að skipta við hana... á meðan ég sit og ergi mig á heimadæmum og viðeigandi... þá bara liggur hún í mestu makindum og sefur og sefur og sefur... vaknar, fær sér vatn og sefur svo meira... þetta er lúxus líf hjá henni... svona mundi jólafríið vera hjá mér ef ég væri ekki að vinna... nema ég mundi gera 50/50 sofa og horfa á tv... sem eru nottla ekkert frábrugðnir hlutir...
var að koma heim úr ræktinni... tími #2 búinn og ég vona að ég verði ekki með hassperur í 2 daga aftur... er að fara á fjöll á laugardag... svo kom ég við í suðurveri á leiðinni, Ragga gömul vinkona mín að vinna þar, ákvað að heilsa uppá hana... og fékk mér smá kjúlla í leiðinni hjá henni... og ... fékk mér smá bjór með kjúllanum þegar ég kom heim... kannski ekki hollasta fæði sem mar getur fengið sér... en mar á nú so bátt að vera að læra svona mikið... híhí...
svo keypaði ég mér líka púkahlunk... nýtt fyrirbrigði... verður að prufa það... hann bíður í frystinum og æpir á mig að koma að éta sig... er að spá í það... smjatta á honum á meðan ég fer yfir þetta eðlisfræði próf...
namm namm
27 nóvember 2003
Birt af Nafnlaus kl. 20:09
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|