oh ég er svoooo dúgleg, mín fór bara í ræktina í gær og keypti sér 3 mán kort eftir tímann!!
ég er nú nokkuð stolt og hissa á sjálfri mér... ég hélt bara ágætlega í við hina í tímanum miðað við það að ég hef ekki hreyft á mér boruna síðan í apríl... ég reyndar klikkaði eikkað á fótaútbúnaði og er núna með blöðru á fótnum... ætla samt attur á morgun löppan mín verður í lagi... og svo er ég með mun minni hassperur en ég bjóst við... æði!
svo fór ég í eitt stykki tilgangslausa apóteksheimsókn í gær... fór í apótek hjá keðjunni sem ég er að vinna hjá... og þar af leiðandi vissi ég allt sem konan sagði... mar er svo déskoti klár og vel upplýstur... þannig að það eina sem ég græddi var að sjá þetta nýja apótek, rosa kúl, allar innréttingar nýjar og stuff... nema það var soldið fyndið að þegar við komum, klukkutíma eftir að þau opnuðu þá var rafmagnslaust hjá þeim.... ótrúlegt hvað mar er ofboðslega háður rafmagni... þarna var ekkert hægt að afgereiða nema einföldustu hluti ef fólk var með akkurat pening fyrir því... þvílíkt ástand... man þetta gerðist einu sinni á selfossi, fór rafmagnið af allstaðar... við gátum hvergi farið að fá okkur að borða í hádeginu!
ég er komin með nýjan disk í uppáhaldi... nýji diskurinn hennar Heru... hún er nú kúl, og syngur oggsla vel... þægilegt að hafa þetta á spilaranum þegar mar er að bögglast í tölvunni... svo hlustaði ég pínu á jólastöðina í gær... taka smá forskot á jólasæluna... manni líður alltaf svo vel í jólaskapi, og ekki spillir snjórinn fyrir, þessi líka ekta jólasnjór... er að fara austur í kvöld að ná í vetrardekkin... lílegast ekki öruggt að keyra um á þessum gatslitnu sem eru undir núna...
25 nóvember 2003
Birt af Nafnlaus kl. 16:13
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|