vídjóið mitt virkar ekki! vitiði hvað það er erfitt þegar maður er þunnur og heilabúið meikar ekkert annað en vídjógláp og aðrar álíka heiladauðar athafnir????
Í gær var s.s. vísó í GlaxoSmithKline og var það nú ekki leiðinlegt. Þetta fyrirtæki fær einkunnina 10 fyrir góðar veitingar. Ekki nóg með það að þarna voru u.þ.b. 100 lítrar af áfengi, þá var líka svo góður matur þarna. sérstaklega kjúklingurinn! uummmmmmm;)
svo fór 1.árið heim til Guðrúnar Stefáns að horfa á Idol og eftir það var haldið á Hverfis. gamangamangaman. mikið ofsalega verður maður samt þreyttur þegar það er byrjað að tjútta kl. 5. ég var gjörsmlega búin á því þegar ég kom heim kl.3-hálf4.
jæja nú ætla ég að fara að leggja mig svo ég verði nú viðræðuhæf í afmælinu hjá Bebbu í kvöld.
adios
15 nóvember 2003
Birt af Eydís kl. 17:09
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|