e-mail hugleiðingar...
ég er ein af þeim fjölmörgu sem eiga hotmail ímeiladdressu... sem er fínt.. ekkert að því... svo um daginn (kannski svona mánuður síðan) breyttu þetta hotmail fólk lúkkinu og sona, allt orðir rosa fínt og grúví og allt í þá áttina... áður en það gerðist þá var eila alltaf að koma rosa rosa mikið að crap-pósti til mín, og innihélt yfirleitt alltaf eikkað í sambandi við kynlíf, megrun eða að borga af lánum... og alltaf frá USA held ég nánast... en ég er nottla sniðug og læt hotmailið sía burt junkmailið því það er svo gott og af því að það er hægt... en svo eftir að þeir breyttu þessu þá minnkuðu öll þessi rusl bréf sem buðu mér lesbískar stuttmyndir ókeypis (hef því miður ekki áhuga á því þó það sé ókeypis), að losna við öll mín lán sem eru að íþyngja mér mér að kostnaðarlausu (lánin okkar eru bara í gúddí fíling, ég þarf engar skyndilausnir fyrir þau) og að grennast á 3 klst var ekki lengur möguleiki sem ég þurfti að velta fyrir mér... fyrst eftir breytingar var þetta ljúft líf en nú er annað uppá teningnum, annað soldið fyndið reyndar... núna koma bara mail frá "íslenskum" addressum, eða allt að því, áðan fékk ég td meil frá forsaetisradherra@hotmail.com með tiltlinum: hi, i've got your mail! sem er tiltill sem ég sé ansi oft þessa dagana og var bréfið 100KB, það er aldeilis sem ráðherrann þarf að tjá sig við mig... einmitt þegar ég kíkti á junk mailið áðan, þá var limitið mitt nánast orðið búið því mín biðu 4 eða 5 ruslpóstar frá "íslenskum" addressum, hvert ca. 100KB að stærð... mér finnst bara svo fyndið að fólk skuli halda að mar opni þetta frekar þegar það er skráð svona, "íslenskt" mail með útlendum titli, "trojan hores is in your computer" er einmitt algengur póstur þessa dagana, ætli það sé keðjubréf?? ;)
15 janúar 2004
Birt af Nafnlaus kl. 11:37
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|