sko, ég bara verð að tjá mig um þessi einkuna skil (sem eru bæ ðe vei fyrir neðan allar hellur hjá umræddum) ég var að skða fyrir áramót hvernig þessu væri háttað með einkunarskilatíma hjá þessum blessuðu kennurum... þar stóð að eftir haustannarpróf hefðu kennarar 4 vikur til að skila af sér einkunum.... svo mætti ég í tíma í síðustu viku þar sem ég fékk að heyra það að utanlandsferð telist ekki til þeirra afsakanna sem teldust "lögmætar" (ef svo má að orði komast) fyrir það að skila ekki af sér verkum sem manni er ætlað að vinna eða fyrir að mæta ekki í verklega tíma... en svo núna... þá bara skil ég ekki hverju skal trúa... á miðvikudaginn í síðustu viku átti ég að fá einkun úr stæ-prófi, þá voru, samkv dagatali sem ég fann á heimasíðu minni í háskólanum, liðnar þessar 4 vikur sem áður voru nefndar, kennarinn er semsagt kominn á rautt með að skila einkunum fyrir þetta próf... en ef einhver ætlar að segja mér það að þetta sé allt í lagi og ekkert sé siðferðislega rangt við þetta af því að prófdómarinn hafi verið úti á Canari (veit hreinlega ekki hvort hann sé kominn heim aftur einu sinni) þá veit ég ekki hverju ég á að trúa... ég hefði haldið (ok, kannski soldið simple minded) að það sama gildi um öll dýrin í skóginum og að útlandaferð gildi ekki sem afsökun þegar skila skal einkunum...
allavega finnst mér sökka að vera ekki búin að fá útúr þessu prófi...
12 janúar 2004
Birt af Nafnlaus kl. 16:29
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|