ein í millibilsástandi...
úff púff... þetta er nú eila bara soldið strembnara en ég hélt... fólkið sem á trukkinn minn núna var sko að bruna á honum burt... þetta var bara í góðum fílings, mar hefur nottla ekkert á móti því að hafa reikninginn sinn svona mikið í plús eins og staðan er núna... en þegar þau voru að fara og stóðu svona aðeins í dyrunum (svona kurteisis spjall þið vitið(og jeppa tal líka)), þau voru að tala um að þau væru að fara á Langjökul á sunnudag og voru eikkað að hafa áhyggjur af erfiðu færi, þegar kallinn minn segir: iss, þið komist þetta léttilega... hleypið bara niðrí 2 pund og strauið þetta! (idiod-proof þýðing: að láta vera lítið loft í dekkjunum og gefa duglega í svo bíllinn þjóti í gegnum snjóinn) þá sá ég þetta bara fyrir mér og fattaði að þetta geri ég ekki næstu árin... þá varð þetta soldið dapurlegt... sérstaklega þegar mar hefur ekki nýtt leikfang (bíl) til að dást að og hugga sig á... en svona er lífið... kallinn var einmitt að yfirgefa mig til að bruna austur (verður fram á sunnudag :( (eins gott mar læri vel!)) til að hitta bílasölu-félaga sinn... þannig að kannski batnar bágtið bráðum!
þannig að ég er bara ein og yfirgefin núna og næstu sólahringa, hef ekki einusinni loðna kvikindið mitt (hundinn) til að minnka einmannaleikann... þannig að það er eins gott að ég verði úber dúgleg að læra, auk þess að vera dúgleg að fara í ræktina, vinna, þrífa, laga föt... (mér finnst verkefnalistinn ALDREI styttast(og svo bætist nýtt við eftir helgi))
anywho.... best að koma sér það að verki!!
p.s. allir að skella sér að skoða myndir síðan á Deltu/idol djammi!!!
23 janúar 2004
Birt af Nafnlaus kl. 17:58
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|