20 janúar 2004

Halló, nei þið eruð ekki að sjá ofsjónir. þetta hafðist eftir allt saman ég er búin að læra á þetta eða við skulum segja að ég er búin að læra að komast inn á bloggið, fékk sýnikennslu hjá Ellu á föstudaginn:) En það er bara spurning hvort að þetta takist hjá mér því eins og þið vitið þá er ág tölvusnillingurinn í hópnum:) Er svo til nýkomin heim og ég hélt að ég myndi bara drukkna á leiðinni frá VR og niðrá bsí það rigndi svo mikið, þurfti að vinda fötin mín og hárið, og það hlóu allir af mér á bsí en það hefði verið allt í lagi ef mér hefði ekki verið ískalt líka. Jæja ætlaði bara að prufa þetta ætla líka að prufa að læra soldið núna kanski ég geti það líka, mar veit aldrei.