11 janúar 2004

úff púff, ég held næstum að mar sé ennþá að fjafna sig sálfærðilega eftir þessi próf fyrir áramót, ég amk get engan vegin fengið mig til að setjast niður og læra, eða jú, það tekst sossum að setjast niður og koma sér í stellingar, en einbeitingin helst ekki lengi... samt er þetta ekkert leiðinlegt held ég (er að rembast við lífeðlisfræði sko...), amk svona það sem ég er búin að sjá í glugg umferðinni minni í gegnum bókina... mar er bara með einhverja sálarkomplexa....
og svo er það ímeil dauðans... sem var nú reyndar voða venjulegt frá Mr.T en ég bara bjóst ekki við þessu, ég meina hann hefur ekki mætt í einn einasta tíma!! (við mikið fögnuð)... þó það sé nú ólíklegast í heimi að einhver vilji færa sig yfir á laugardag... pæliðíði stelpur hvað það yrði týpískt að hann mundi svo mæta á miðvikudaginn og við fengjum að njóta samvistar hans í verklegri eina önnina í viðbót... ég mundi fríka... ætli hann hafi kannski ekki mætt því hann var ekki verið búinn að fá einkunina úr efnó prófinu og hann hafi svo náð... það eru miklar mysteríur í kringum þetta mál...