fyrst ég er nú byrjuð á því að panta atburði á dagskránna hjá okkur... getum við þá farið á ball ef það er eikkað eftir lybbaleika??? þetta sýnir kannski best hvað ég er sveitó (og fílaða!!) en ég er með stillt á popptíví sem er að sýna eikkað eldhúsparty með stuðmönnum og í svörtum fötum (sem eru btw mjög góðar ballhljómsveitir, þar fara margar kalóríur) og rétt í þessu hljómaði taktu til við að tvista hér um stofuna mína, og ég bara gat ekki setið kjurr!!! orðið soldið langt síðan ég hef farið og viðrað dansarann í mér... við bara reddum þessu stelpur, mössum þetta upp!
07 febrúar 2004
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|