09 febrúar 2004

Ég fékk þá snilldarhugmynd, að ég hélt, að fara í ljós í dag þar sem ég var orðin frekar litlaus . Þegar ég fór inn í bekkinn var ég eins og hvítt endurskinsmerki en ég kom út úr honum í stíl við bolinn minn, ELDRAUÐ! Þannig að nú ligg ég heima með kæligel og þakka guði fyrir það að vera ekki í skólanum á þriðjudögum, þar sem ég þyrfti að setja heila meikdollu á mig áður en ég fer út úr húsi. Ég held að ég muni eftir sólarvörninni næst.