17 febrúar 2004

Ég væri mega til í að eiga einn dag í að gera alls ekki neitt!! bara liggja uppí sófa og láta færa mér mat helst!! en það er ekki alveg á dagskrá á næstunni... svona ekki fyrr en í sumar amk... mar kannski tekur sér einn dag frí á milli skóla og vinnu til að gera ekki neitt, það er amk ekki lélegt hugmynd! fínt samt að vera í fríi í allan dag, segi það ekki, en ég er samt alveg búin að klúðra deginum... fór í morgun með tölvuna mína í viðgerð (einhver vifta er að gefa sig og suðar með hávaða dauðans) eða réttara að segja reyndi að fara með hana í viðgerð, ætlaði bara að hinkra eftir þessu, tekur víst bara enga stund, opna - taka út skemmt - setja inn nýtt - loka... en þá kom í ljós að ég ef ég vildi bíða eftir þessu þá þyrfti ég fyrst að skreppa heim og ná mér í byrgðir fyrir næstu 3 daga!!! og ég nottla má ekki alveg við því (hvorki að bíða né missa tölvuna) þannig að ég fór heim í sama ástandi og í morgun og á panntaðan tíma í viðgerð á föstudaginn!!
og svo er ég alveg ekki að nenna að fara að læra... þarf að byrja á því að lesa skáldsögu (ákvað að skella mér á harry potter) fyrir hraðlestrarnámskeiðið sem ég er að fara á í kvöld... og það er sko 1 klst...
þannig að það er víst best að koma sér að verki svo mar nái nú að nýta þennan frídag í eikkað annað en að sóa tímanum!