Dagurinn í gær var ömurlegur. Ég kom heim rétt fyrir sex í gær að drepast úr þreytu og hungri. Ég ætlaði að fara í bað og var ekki fyrr komin ofaní fyrr en pabbi hringdi og sagði að ég yrði að fara strax að vinna. Ég þurfti því að drífa mig upp úr og afboða það sem ég var búin að plana um kvöldið. Svöng, þreytt og ótrúlega pirruð rauk ég í vinnuna og þegar ég var að fara að leggja bílnum þá tókst mér að klessa hann. Viðgerðin kostar 30-40 þús en pabbi vorkenndi mér svo mikið að hann ætlar að borga það.
19 febrúar 2004
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|