20 febrúar 2004

Jæja, ég er búin að skipta út öðrum lífsförunaut mínum, hann var skýrður Beckham jr. þar sem um er að ræða nýjan síma eins og Beckham er með í OgVodafone auglýsingunni!! Minns gamli var nebbla alveg búinn á því hann var alltaf svo batteríislaus... frekar leiðinlegt að geta ekki orðið klárað eitt símtal án þess að skellast á fólk... Þetta er semsagt panasonic kvikindi með allskonar fídusum... þetta er samt titlað ammlisgjöf frá kallinu þar sem mar er nú að verða gamall á næstunni... mar er nú soldið djarfur að skipta úr idiod-proof nokia yfir í svona flókið kerfi, en það er nú samt eila skemmtilegast þar sem ég er ofurnörd í að fikkta mig áfram í svona raftækjum með takka!! rosa fínt líka því þá hef ég eikkað að grípa í (sleppi líklegast ekki úr hendinni) í vinnunni ef það skyldi nú vera lítið að gera og þá líður dagurinn fljótar svo ég komist "fyrr" í bústaðinn.... ég fékk líka annan ammlispakka frá tengdamom í þyskalandi í dag, en hann ætla ég nú ekki að opna fyrr en á réttum tíma, mar verður nú aðeins að halda í hefðirnar ;)