25 febrúar 2004

Loksins loksins, er komin með netið á nýjan leik og get farið að fylgjast eitthvað með því sem er að gerast. get líka farið að ná mér í glósur og svona. Lifi algjöru lúxuslífi núna þarf ekki að vera á hlaupum til þess að ná rútu get bara rölt heim til mín. Eini gallinn við þetta að það er enginn til þess að elda matinn fyrir mig þvo þvottinn og svona lagað, engin hótel mamma. en jæja maður þarf nú að venjast því að sjá um sig sjálf. Tími að fara að halda áfram að læra, geri svo lítið af því(hahaha)