27 febrúar 2004

próftaflan er komin...
Lífeðlisfræði 30.apríl
Örverufræði 4.maí
Efnagreining 8.maí
Alm.efnafræði 15.maí
hún lítur samt alveg sæmó út sossum, rosa góður tími fyrir almennu efnafr sem er mjööög gott, enda ekki veitir af... annars 4 daga milli hinna prófanna sem er sæmó held ég... bara eins gott að það verði upplestrarfrí eða eikkað á undan lífeðlisfæðinni, sérstaklega ef það á að vera svona "síunar" próf þá veitir manni ekki af því að fara mjög vel og vandlega yfir þetta.... annars verður mar bara skrópandi síðustu vikuna...
annars er ég svo húsmóðurleg núna, það er sko bökunarafrek aldarinnar í gangi, skellti í muffins í morgun, er að fara að vinda mér í skúffuköku núna eftir að ég stend upp og svo eru það pönnsurnar á morgun (ég geri sko bestu pönnsur í heimi) og þetta er allt ekta frá upphafi, engin betty crocker eða nein önnur kelling sem styttir mér leiðir, ó nei! þannig að það má búast við að ég verði með dýrindis nesti næstu 3 vikurnar