06 mars 2004

Þessi árshátíð var nú meiriháttar! Þeir sem ekki fóru misstu af miklu. Atriðið okkar var auðvitað æði og alger snilld hvernig setningarnar pössuðu fullkomnlega inní söguna. Búningarnir voru líka bara flottastir. Samt synd hvað það fóru fáir í bæinn. En samt gott fyrir þá að því leiti að þeir lentu ekki í leiðinlegasta dyraverði í heimi sem var því miður í MH og heldur að hann sé æðislegur. Sá maður er bara einn mest hataðasti maður í heimi. Ég skil ekki hvað er málið með nasty dyraverði. Ef ég ætti skemmtistað yrði sá staður reyklaus og með indælum dyravörðum.
Annars held ég að ég hafi borðað of mikið nachos, ér barasta ennþá södd. Ég var nú nýbúin að borða á árshátíðinni og þurfti ekkert á þessu að halda en gaurarnir létu mig samt klára allt. Ég bað ekki einu sinni um nachos!