02 mars 2004

Varað fatta hvað er langt síðan ég bloggaði síðast! Ég sem kom svo sterk inn! Hvernig er þetta með þetta árshátíðaratriði okkar? Ætlum við að farað dansútí rigningunni? Mér líst svo sem ekkert alltof vel á það! Þá verður þetta myndband líklega meira grín að okkur rennblautum en ruglaða dansfólkinu í bleiku spandexgöllunum með mottuna (samt ekki bæði á sömu manneskjunni).
Annars var ég að komúr klikkuðum Body Step tíma. Þetta tók sko aldeilis á. Þetta eru MEGA tímar. Við dönsuðum samt ekki jafn mikið og síðast en það voru komnar e-r nýjar útfærslur á sporunum og ég var ekki alveg að ná öllu. Það hlýtur að komá endanum ef hún fer ekki að breyta aftur.