21 mars 2004

Í gær reyndi freðnasti gaur heims við mig, hann var gaddfreðinn. Hann reyndar neitaði að vera freðinn en á hinn bóginn neitaði hann líkað vera drukkinn og það angaði svoleiðis af honum. Ég reyndi að segja honum að það þýddi ekkert að reyna við mig því ég væri EDRÚ!!! en það þýddi lítið. Hann bara hélt áfram að reyna við mig og var hálfpartinn búnað króa mig af útí horni. Samt var hann að tékka á um það bil hverjum einasta kvenmanni (og ég held líka karlmanni) inná Sólon.
Vini hans virtist mjög annt um að við næðum saman og ekki var hann skárri. Hann var alltaf að reynað láta freðna gaurinn halda í höndina á mér. Það var ekki hægt að ná neinu sambandi við þessa gaura og þegar ég reyndi að spyrja um nafn sagði hann bara : Veistu ekki hver ég er??? Eins og ég viti hver e-r er!! Að lokum fékk ég að vita að hann heitir Þröstur. Ér 100% að ég þekki engan Þröst og ég efast um að hann sé e-r frægur. Nema hugsanlega hann sé frægur fyrir að vera með e-m sem var frægur fyrir að vera með e-m frægum.
Það besta var þegar hann sagði að það væri of heitt inná Sólon og spurði mig hvort ég vildi fara út með honum. Gaurinn var í dúnúlpu inni!!! Vinkonur mínar voru að deyjúr hlátri en ég hafði ekki húmor fyrir þessu bláedrú.
Svo á leiðinni útaf Sólon greip e-r gaur í handlegginn á mér og sagði HÆ eins og við þekktumst gegt vel eða e-ð. Ég horfði á hann eins og hann væri frík enda kannast ég ekkert við hann. Hann horfði lengi á mig og sagði Jú við þekkjumst er þæggi, en ég hélt áfram að horfá hann eins og hann væri frík þangað til hann labbaði í burtu. Frekar vandræðalegt móment ef ég þekki gaurinn en ég efast um það. Hann leit ekki út eins og e-r sem ég myndi þekkja.
Anywayz farin að læra....