MIKILL FENGUR
hér með er því lýst yfir að Elínborg Kristjánsdóttir er lystakokkur mikill og því mikill fengur fyrir fríða og fjáða karlmenn. Nú er bara að slást um hana strákar, þið hefðuð bara átt að sjá hvað hún tók sig vel út með svuntuna og segir mér svo hugur um að hún hafi dúxað í hússtjórnarskólanum þar sem lokaverkefni hennar hefur líklega verið furðulegir en góðir eftirréttir og notalegar samræður yfir kertaljósi. svoleiðis var það allavega hjá okkur fimmkommanull gellunum í gærkveldi og verð ég nú bara að segja að þetta var alveg svakalega vel heppnað kósí-kvöld hjá okkur og takk fyrir mig;)
21 mars 2004
Birt af Eydís kl. 22:38
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|