jæja þá er enn ein vikan hafin og hún byrjar alveg ágætlega, loksins er komin sól:)
því miður var ekkert lært um helgina, það var bara búaið til ostapinnar og alskonar matur, og svo að elda hann og passa að allir gestirnir fengju nú nóg að borða, gleymdi alveg að borða sjálf sem er mjög sjaldgjæft. En það var allt í lagi því pabbi var svo ánægður með veisluna sína að það var alveg þess virði. svo komst ég að því að amma væri komin heim af spítalanum, jibbí:) EN ég hef svosum ekkert að segja nenni bara ekki að halda áfram að læra sem er mjög algengt þessa dagana en maður verður að hætta þessari leti og rífa sig upp á rassgatinu og drullast til að gera eitthvað af viti.
15 mars 2004
Birt af Nafnlaus kl. 19:09
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|