það var kvartað við mig í gær að ég skrifaði ekki hérna lengur... mar verður nú að bæta úr því... það bara gerist assko*** lítið hjá manni nema mar er alltaf að reyna að finna auka klukkustundir í sólahringnum en það hefur ekki tekist, en ef einhver lumar á góðri uppskrift þá endilega láta mig vita...
annars þá er þetta eina helgin mín í langan tíma, bæði fram og til baka, sem ég er ekki að vinna neitt.... þess vegna er hún helguð lærdómi... hefur ekki endilega farið sem best en það er enn einn dagur eftir þannig að það er enn séns... samt er maður alveg úti á lífinu þannig séð... kíkti á 2 vinkonuhópa í gær. Fyrst til Erlu Siggu í ótrúlega glæsilegt afmæli, fær hún mörg húrra fyrir það!! eftir að hafa setið þar og spjallað þá reif ég mig frá þeim hópi (með erfiðismunum) og hitti "gömlu" gellurnar mínar... það má ekki skilja út undan!! svo núna í kvöld þá verður mar að gera eitthvað með kallinum sínum, svona fyrst mar er ekki uppteknari en svo... þannig að við erum á leið á double date í keilu með Grétari og Kötlu... mar verður líka að styrkja böndin út á við... þannig að það er eins og ég segi... ekki mikið um dauðar stundir hjá manni sossum... sakna þess reyndar að vakna upp að sjálfsdáðum, þeas án hjálpar vekjaraklukkunnar...
en ekki meir í bili... bara næst þegar það er ekkert að frétta ;)
13 mars 2004
Birt af Nafnlaus kl. 21:23
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|