GLORY GLORY ! ! !
já í dag er góður dagur, sólin skín, vindurin blæs og framkallar frískandi eplakinnar, páskafríið er gengið í garð, ég er búin að skila öllum andskotanum af mér þessa önnina og íbúðin er orðin temporary orðin hrein. já það gekk sko mikið á í dag, örverufræðin kláruð í sól og glugga-sumaryl þótt þátttakendur væru misvel vaknaðir (ekki ég sko, ég var nottla úber hress), svo var farið í lífeðlisfræði munnlega skýrslu, gott að vera búin með það þó mig hafi nú ekkert kviðið fyrir þessu (var nottla bara ísí-góíng eins og alltaf) og þar með er viku frí framundan, frí sem kennt er við páska. því er dagurinn í dag góður fyrir 2 hluti:
1. ég er komin í páskafrí, þó þessu páskafríi fylgi maraþon af skólabókalestri frá morgni til kvölds alla daga, þá fylgja líka páskafríi páskaegg! og ég fekk sko styrk í gær til að geta fjármagnað með góðri samvisku 1 stk nóa egg nr.7(og ójá verður það egg keypt og étið upp til agna!) eitthvað verður mar að maula með þessum bókum...
2. ég skilaði af mér örverufræði skýrlsum, öllum sem voru eftir og þar með eru skýrsluskil fyrir þessa önninna búin (ef við huxum ekkert út í komandi 2stk heimadæmi, þau eru ekkert mál) þannig að nú er hægt að einbeita sér 150% að lestrinum, jeij!
þannig að í tilefni dagsins í dag þá bara þreif ég, ójá, vaskaði duglega upp, þreif öll borð í eldhúsinu vel og all-vandlega, ryksugaði og gerði það sem er búið að vera á dagskrá í margar vikur: þreif klóið, þannig að næstu dagana verður bannað að fara í sturtu og nota klóið með öllu! (híhí) ég er svona farin að þekkja mig það vel (enda löngu kominn tími til!) að ef ég þríf ekki sæmó núna þá verð ég að farast úr þeirri hugsun að ég "verði" að gera það næstu vikurnar, og skemma þar með lærilíusarplanið...
þannig að ég ætla að hætta þessu blaðri, amk í bili því ég legg til að hér verðir sagðar dramatískar heimalærdóms-æsifréttir á komandi vikum (bara gera óspennandi hluti spennandi!) og til við getum veitt hvor annari styrk og samhug í komandi tíð!
party party 
06 apríl 2004
Birt af Nafnlaus kl. 17:17
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|