02 apríl 2004

æjæjæj, leti og aftur leti, ég get ekki sagt annað... og það á versta tíma... nú er sko kominn apríl og styttist óðum í prófin...
annars missti ég alveg af 1.apríl að því leiti að ég sá eða heyrði ekkert apríl-gabb, það er reyndar ekkert skrítið miðað við það að ég horfi ekki á fréttir og kallinn er farinn að taka fréttablaðið með sér í vinnuna (því ég les það svo sjaldan) og ég stend því eftir ein ógöbbuð! reyndar heyrði ég í útvarpinu í gær símtal við Adam Sandler þar sem hann væri á landinu og væri að mæta á frum/for sýningu á myndinni sinni, 50 first dates... ég veit ekki alveg hvernig á að taka því þar sem það var víst verið að auglýsa þetta alla vikuna, kallast það þá apríl-gabb? svo var ég reyndar að lesa á síðuni hjá Erlu mágkonu að þau skötuhjúin ætli að flytja til USA eila bara rétt eftir að krílið þeirra fæðist... ég veit ekki heldur hvernig ég á að handlera það þar sem þau eru soddans grínarar... svo væri það líka frekar fúlt, fæða litla "frænku/frænda" handa mér og fara svo... bömmer... þannig að þetta var það sem ég get hugsanlega flokkað undir apríl-göbb....
þessvegna óska ég hér með eftir því að fá að vita april-göbbin fyrir þetta árið, hverju missti ég af ???