13 apríl 2004

hey ég sá fræga konu í gær!!!!
ég var að borða á Ruby Thuesday í gærkvöldi og það voru einhverjir útlendingar 2 borðum til hliðar og meðal þeirra var kona sem við könnuðumst svo svakalega við. stelpurnar halda að hún heiti kathy bates en ég hef bara ekki hugmynd en hef séð hana í nokkrum myndum. eina myndin sem ég man samt eftir er titanic. hún lék molly sem var nýorðin rík og lánaði jack smókingföt til að fara með þeim í dinner. svo ég hef séð konu sem hefur séð leonardo di caprio;) vá ég er næstum því fræg;)