Vá maður þetta páskafrí hefur verið aldeilis leti páskafrí. Ég hef ekki komin neinu í verk nema í gær reyndi ég að læra á línuskauta. Ég fékk smá hjálp en var samt ekki alveg að ná þessu. Ég er alveg ágæt á skautum en það er frekar mikið öðruvísi að vera á listdansskautum heldur en línuskautum. Þegar ég ætlaði að ýta mér áfram datt ég bara á hausinn.
Ég held maður verði að farað snúa sér að skólabókunum. Næst á dagskrá hjá mér er efnafræðin því það er eina bókin sem ég sé fram á að geta klárað í einum grænum. Ér komin svo skammt á veg í hinum :(
10 apríl 2004
Birt af gudrunst kl. 15:36
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|