jæja já... svona er mar nú sorglegur... kominn heim kl 23:30 úr party til að geta sofið vel fyrir morgundaginn... þetta var samt skrambi gott party takk Ása og Árný... mjög langt síðan (eða bara aldrei) sem ég hef komið í heimaparty þar sem var svona mikið fólk, þarna voru fsu-ingar, tálknfirðingar, egilsaðingar, sveitalubbar, frændfólk, þýskunemar og makar... og eflaust fullt annað fólk
þetta er svona þegar 2 manneskjur frá sitthvorum staðunum í sitthvorri vinnunni/náminu halda saman ammlisparty, það verður bara þétt pakkað og vinsamlegast að koma með stóla með sér!
annars er það helsta í fréttum að ég neita að láta örv-lestur gera mig lærdómslega-náttúrulausa og hef hafið efnógreiningar maraþon lestur.... hann gengur mjög vel, amk eins og formúla miðað við örv lesturinn... samt soldið skrítið sko... hef nú verið að fletta glósum frá snó með lestrinum... annað hvort var ég bara ekki nóg og dugleg að skrifa niður það sem kallinn sagði eða hann sagði bara ekkert merkilegt um það sem hann var að segja... amk er ég bara með formúlur og útreikninga og engan útskýringartexta með! og svo fattaði ég nokkuð annað soldið skondið... nánast undartekningarlaust (amk í þessum 12 köflum sem ég er búin með, afgangurinn er á dagskrá á morgun, þessvegna er mar jú í rólegheitum núna) sleppir hann síðustu undirköflunum í hverjum kafla, eins og kallinn sé bara orðinn þreyttur á þessum kafla og nenni ekki að klára hann!! en mar er nú samt svo ósköp dúglegur að mar klárar þetta nú... les kaflann til enda
anyways... atla aðeins að tjilla yfir smá mynd... svona fyrst mar er hvort eð er ekki að læra ;)
17 apríl 2004
Birt af Nafnlaus kl. 23:45
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|