Ég verð bara að koma þessu (sko, átti að vera linkur á svona "karókí" með ekta sólarlagi með gipsy kings en það er víst ekki hægt....bömmer ) á framfæri... sniiiiiild.... sérstaklega þar sem þetta lag dregur fram þokkalega sterka mynd í huga mér... þegar við vorum í útskriftarferð á Bene og við gellurnar fórum að snorkla en til að komast á snorkl staðinn þurftum við að fara á svona seglskútu... fyrst þegar við lögðum í hann þá var ekki alveg búið að draga frá sólu (var snemma um morguninn) og það var smá blástur og þ.a.l. soldið kallt... við vorum nú soldið súrar (á spáni á að vera heitt!)... þegar á staðinn var kominn þá vorum við ekki alveg komnar í fílinginn þannig að enga af okkur langaði til að snorkla (bara svona með froskalappir, risa sundgleraugu og öndunarrör, engin búiningur eða neitt,bara kuldi) nema Ólöf yndi, hetjan hún ætlaði sko að fá að sjá það sem hún kom til að sjá og skellti sér út í kuldann, kom uppúr eftir smá tíma og gargaði.... þetta var svo flott!!... þannig að á endanum drulluðumst við allar útí (ekkert smá kallt en vandist samt ótrúlega vel) og þetta var ekkert smá flott... eins og í gullfiskabúri.... svo á leiðinni til baka þá var sólin farinn að skína eins og hún frekast gat og kallinn sem var með skútuna var með Gipsy kings (þessir sem flytja þetta) í botni og við vorum í engum smá fílings, í bikiní, flottar og brúnar með táslurnar framaf skútunni og láta þær dífast oní öldurnar... oh það var svo gaman... bara takk fyrir mig alle sammen
útskriftarferðir eru snild!! ég væri sko alveg til aftur...
sérstaklega núna þegar sólin skín úti og mar þarf að vera inni með nebban oní bókunum og verður fölari með hverjum deginum sem líður! ...en þetta fer jú bráðum að verða búið, verður mar ekki að halda í vonina um betri tíð svo mar fari ekki yfirum??
19 apríl 2004
Birt af Nafnlaus kl. 15:23
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|