21 apríl 2004

Það var ekkert smá sorglegt að þurfað sitja inní dag og læra í þessu fallega veðri. Á tímabili bara varð ég að draga fyrir alla glugga tilað byrgja sólina úti og reynað telja mér trúum að það væri rigning og rok úti. Ég hitaði mér meirað segja te þannig að þetta var svona ekta vetrar fílingur (eða næstum sko, þetta var nebbla ginsent te og það þýðir meira próf fílingur svona tilað halda manni vakandi).
Svo fór ég í sund um 7 leytið í hina yndislegu sundlaug Garðabæjar (er það með stóru S-i?). Þar voru stórir hópar af miðaldra mönnum sprangandi um á þröngum sundskýlum, frekar ósmekklegt. Ótrúlegt hvað karlmönnum dettur í hug að gerí sundi. Halda alltaf að þeir séu svo flottir!!