24 maí 2004

Jíha fyrsti vinnudagurinn búinn og allt gekk bara vel fyrir sig. Fékk að sitja úti við læk í mest allan dag og lesa mér til um lausasölulyf. og ér bara orðin nokkuð útitekin :)
Svo er starfsfólkið að fara í leikhús á fimmtudaginn og mér bara boðið með og allt í boði actavis. Það er svo yndislegt fólk að vinna þarna með mér. Ég held þetta verði bara mjög fínt sumar. Svo framarlega sem ég fari ekki að gera e-a skandala og svona.
Það var samt frekar vandræðalegt þegar kvensjúkdómalæknirinn minn hringdi þegar ég var búnað vinna í svona 2 klst og heimtaði að símsenda lyfseðil í apótekið. Nýbyrjuð að vinna þarna og þegar vita allir mína sjúkdómasögu! Já þetta er víst það slæma við að vera í lyfjafræði. Eins gott að maður fari ekki að fá e-a vandræðalega sjúkdóma þegar maður er farinn að þekkja alla sem vinna í apótekum!