Jæja, það er alveg með eindæmum hvað netþörfin snýst við þegar prófin eru búin!! Þegar mar er í tímahraki (sem virðist alltaf gerast í próflestri) og á helst að lesa frá sér allt vit öllum stundum þá virðist alveg ómögulegt að slíta sig frá internetini eftir að hafa "rétt" sest niður til að kíkja "aðeins" á netið, en bara um leið og síðasta prófið er búið þá snýst dæmið sko alveg við og mar kíkir eila bara á þessar "venjulegu" síður af einskærri skyldurækni, amk í mínu tilfelli...
Vinnan bara byrjuð á fullu from day one og ég sit í verslunarstjórastólnum í mestallt sumar skal ég ykkur segja, ójá, venja mig við völdin því allir sem vilja fá vinnu í lyfjaiðnaðnum munu í framtíðinni lúta undir minni stjórn
Annars er nú ljúft að þurfa ekki að sinna neinu að vinnudegi loknum nema þá helst húsmóðurstörfum (sem ég nenni ekki heldur enda má sjá það á troðfullri þvottakörfunni) Ljúfa líf að þurfa ekki að flýta sér neitt því tíminn er svo dýrmætur, enda væri það þá helst að mar þyrfti að flýta sér heima að leggjast í bókarlestur eða tövluspilaleiki, íþróttirnar og sportin koma seinna þegar fæturnir (þessir sem hafa verið ónotaðir í síðastliðna 9 mánuði) hafa jafnað sig örlítið á >8 tíma vinnudegi... Og svo er líka fínt að geta bara farið að troða inn í sjónvarpsdagskránna hjá sér endalaust af spennandi og jafnvel bara pínulítið áhugaverðum þáttum og það tekur ekki tíma frá neinu öðru, já SUMARFRÍ er ljúft....!!!
þó get ég nánast lofað ykkur því að í haust hlakka ég til að byrja aftur 
25 maí 2004
Birt af Nafnlaus kl. 00:05
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|