læra hvað !?!?!?!?!?!
vá hvað það var gott að vera búin í prófinu í gær. ég var orðin svo geðveikt þreytt í enda prófsins að ég ætlaði varla að nenna að klára það. annars var SNÓ alveg svakalega góður vinur minn í gær. ég hafði beðið hann um hjálp fyrr í prófinu og þegar hann kom aftur inn í stofuna þá kom hann til mín (ég bað sko ekki um hjálp þá) og hallaði sér á borðið og spurði mig hvort ég væri búin með nammið mitt. já segði ég og þá sagði hann ææ og sagði mér hvernig ég ætti að leysa liðinn sem ég var að glíma við án þess að ég hefði nokkuð spurt. hann hefur sennilega vorkennt mér þarna í nammileysinu. ég held ég hafi nú samt náð að klúðra þessum lið en mér fannst þetta bara svo fyndið að ég var með svona hláturkúlu inní mér í svolítinn tíma. sem betur fer sprakk kúlan ekki því þá hefði ég ekkert gert til að stoppa það eins og fólk veit sem þekkir mig.
ég er svo ánægð hvað ég náði að sumarstússast mikið í gær. fór í sund, grill, bíó og svo tókum við ólöf einn í bæinn. oooog svo svaf ég út í morgun, svo nú er ég alveg úthvíld og endurnærð! er að vísu ekki byrjuð að læra ennþá en ég gæti hins vegar hugsað mér að gera það í náinni framtíð, sem er önnur tilfinning en í gær- vá hvað ég var búin á því!!!
anyways, kannski mar fari bara að læra......
sjáumst með bjór í hönd næsta laugardag;););)
09 maí 2004
Birt af Eydís kl. 15:44
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|