Orræt... Már búinn að senda allsherjar-mail á línuna um tilhögun prófsins... 20% krossar... asnó að segja þetta en mér fannst fúllt að lesa þetta, þar sem ég er búin að búa mig undir 80% krossapróf... reyndar enginn munur í sjálfu sér á því hvernig mar lærir því mar þurfti hvort eð er að reikna í krossunum til að fá út rétt svar... fer samt alveg með mann andlega einhvern veginn... Hann er eikkað orðinn mannúðlegri núna og bendla uppsetningu prófsins í ár við próf fyrri ára, sem er nokkuð gott nema að því leyti að þar með bætist í bunkann sem ég ætla að læra fyrir prófið, gerði bara passlega ráð fyrir að prófið núna yrði eins til haft og fyrir áramót og því engu líkt fyrri prófum, þessvegna ætlaði ég ekki að sóa tíma í það... Alveg yndislegt semsagt að fá þennan ímeil, ég finn ástina í honum!!
Annars sýnist mér á kommentaranum okkar að Elín ætli að fórna sér í húllumhæjar uppihald á laugardaginn... er þá ekki júró með stæl, ég vil nú ekki missa af ef Jónsi actually singur sig inn í hjörtu evrópubúa, þó ég trúi því ekki með þessa væmnu vælu, sorry stína... það er þá amk auðveldara að slökkva ef allt fer til fjandans og detta ærlegar í það heldur en að kveikja á "vitandi" að við erum að vinna... það má jú alltaf vona... svo sýnist mér á því sem ég hef séð af lögum hingað til að we're in it for a good laught...
4 og 1/2 dagur í fylleríííííííííí :)
11 maí 2004
Birt af Nafnlaus kl. 08:34
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|